Með því að sérhæfa okkur í Ruby on Rails umhverfinu og tileinka okkur agile vinnuaðferðir getum við þróað veflausnir á mettíma.
Með því að sérhæfa okkur í Ruby on Rails umhverfinu og tileinka okkur agile vinnuaðferðir getum við þróað veflausnir á mettíma.

io ehf
Þróun sérlausna með agile vinnuaðferðum
IO er hugbúnaðarhús sem leggur áherslu á hnitmiðað og árangursríkt vinnuferli í þróun veflausna. Með vinnuaðferðum okkar getum við lofað snöggum vinnubrögðum og hraðþjónustu þegar kemur að því að útfæra hugmyndina þína og koma henni í fullbúna veflausn.
Frumútgáfa á 10 dögum!
Þú kemur til okkar með hugmynd að vef og við förum yfir verkefnið með þér og gerum verkáætlun. Tíu dögum seinna erum við tilbúnir með frumútgáfu (e. prototype) af vefnum þar sem hægt er að setja inn efni og prófa kerfið.
Í frumútgáfu felst grunnkerfi þar sem hægt er að vinna með þær upplýsingar sem veflausnin þín á að bjóða upp á. Segja má að frumútgáfan sé hrá útfærsla af hugmyndinni þinni án útlitshönnunar. Í frumútgáfunni er hægt að prófa hugmyndina þína og sjá á stuttum tíma hvort geri þurfi breytingar áður en lengra er haldið.
Vinnan við frumútgáfuna nýtist svo við lokakerfið og tíminn því vel nýttur — sem og fjármunir þínir.